brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.
Frú forseti. Mín reynsla er a.m.k. sú að starfskjör hjá hinu opinbera eru ekki samkeppnishæf. Ég held að hæstv. fjármálaráðherra hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann talaði um öryggið. Ég held að á undanförnum um tveimur árum alla vega hafi margir sótt í opinbera geirann eflaust í leit að öryggi. Stafræna umbyltingin sem við erum að ganga í gegnum krefst þess að við munum þurfa að fjölga háskólamenntuðum sérfræðingum, bæði innan hins opinbera og á almennum vinnumarkaði. Við þurfum að skapa tækifæri fyrir þessa sérfræðinga á almennum vinnumarkaði til að afla sér verkefna, ekki bara úr jötu ríkisins heldur um allan heim. Já, við búum ekki lengur í samfélagi þar sem allt er einskorðað við þennan litla klett í miðju Atlantshafinu. Við þurfum líka að hafa í huga að í mörgum stærri fyrirtækjum úti í heimi er hætt að horfa bara á háskólamenntun þegar kemur að því að finna réttu sérfræðingana.