152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.

392. mál
[20:41]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og sömuleiðis þeim sem hafa talað. Varðmenn óráðsíunnar hér hinum megin við götuna í ráðhúsinu sátu nú á sér í kvöld, en það er svo sem ekki nýtt að við, gamlar flokkssystur, séum sammála, það er alls ekki nýtt. Hæstv. ráðherra svarar hér og skiljanlega fyrir ríkið, en það væri athyglisvert að hafa heildarmyndina um þróunina hjá hinu opinbera. Þrátt fyrir að aukningu háskólamenntaðra starfsmanna hjá ríkinu sé að hluta hægt að skýra með auknum kröfum um menntun og aukningin sé mest hjá heilbrigðisstéttum skýrir það ekki umkvartanir atvinnurekanda. Kvartanirnar eru líka í takt við það sem við heyrum frá stúdentum og sömuleiðis nýlega greiningu Samtaka atvinnulífsins sem bendir á að Íslendingar leita í mun meira mæli í ný störf hjá hinu opinbera á meðan einkageirinn mannar ný störf með erlendu starfsfólki. Þegar ég útskrifaðist úr lagadeildinni fyrir rétt rúmum áratug þá kepptust laganemar um að komast að hjá stofum og hjá einkafyrirtækjum. Í dag er staðan sú að það þykir mjög eftirsóknarvert að landa starfi hjá hinu opinbera, enda hafa laun opinberra starfsmanna hækkað mun hraðar á undanförnum árum en laun á almenna markaðnum. Ég tek undir orð hæstv. ráðherra um að almenni markaðurinn eigi auðvitað að vera leiðandi í þessum efnum. Svo eins og ég sagði áðan: Jafn góð eða betri laun, mun meira starfsöryggi og stytting vinnuvikunnar. Hið opinbera er farið að bjóða betur en einkageirinn og það hentar sumum einfaldlega ekki lengur. Það er að mínu mati ástæða til þess hafa áhyggjur af þessari þróun.