brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Já, það er margt sem þarf að hafa í huga þegar laun eru borin saman á milli markaða. Það má nefna lífeyrisréttindin í því sambandi og ég er með það á minni þingmálaskrá að leggja fram mál sem tengist lífskjarasamningunum og hefur áður komið fyrir Alþingi, um hina svokölluðu tilgreindu séreign sem er ætlað að tryggja eitt skrefið í átt að því að jafna kjör á milli markaðanna. En hinu opinbera og almenna markaðnum hefur gengið afleitlega að framkvæma þennan samanburð og menn horfa mjög ólíkum augum á það hvort kjörin eru betri á opinbera markaðnum eða almenna. Eins og sakir standa vilja stéttarfélög opinberra starfsmanna meina að það halli mjög á þá. En á sama tíma telur atvinnurekendahliðin að kjörin séu síst verri hjá hinu opinbera. Við höfum verið í þessu samtali í mörg ár. Við höfum komið á fót starfskjaranefnd, farið í tölfræðigreiningar og það gengur hvorki né rekur, svo að ég segi það bara alveg eins og er, það ber enn töluvert mikið í milli.
En af hverju skyldi það vera mikilvægt að almenni markaðurinn sé leiðandi? Mér finnst oft og tíðum lítið fara fyrir skilningi á því í almennri umræðu en hins vegar fengum við þetta dæmi sem ég nefndi hér áðan, óvænt og því miður algerlega óumbeðið, upp í hendurnar eða í fangið öllu heldur þar sem við lentum í niðursveiflu sem fyrst og fremst bitnaði á einkageiranum. Þá sjáum við hvað gerist í hagkerfinu. Við sjáum hvað gerist í ríkisfjármálunum þegar verðmætasköpun stöðvast í almenna geiranum. Þá koma skatttekjur einfaldlega ekki í ríkiskassann og við stöndum skyndilega frammi fyrir því að það skortir 100 til 300 milljarða til að halda úti opinberri þjónustu. Þess vegna verður að tryggja að það sé aðlaðandi og samkeppnishæft umhverfi á hinum almenna vinnumarkaði.