tæknifræðinám við Háskólann á Akureyri.
Virðulegi forseti. Í samfélagi örra breytinga eru háskólarnir algerlega grundvallarstofnanir og við erum að sjá innviðina breytast. Við sjáum sum störf hverfa, þróast og önnur verða til og störf sem eru til núna munu sum hver ekki vera til eftir 10, 20, hvað þá 30 ár. En háskólarnir leika lykilhlutverk þegar kemur að þessum breytingum sem við viljum sjá og þær verða að vera í samfélaginu ef við ætlum einfaldlega að halda í við samkeppnishæf lífskjör, búa til þannig samfélag að við viljum og getum haldið unga fólkinu okkar hér. Við í Viðreisn, eins og fleiri þingflokkar, fórum um landið í kjördæmavikunni og fórum m.a. í Háskólann á Akureyri og ég rýndi í stefnu háskólans eftir að háskólarektor hafði bent á tæknifræðinám sem þeir setja inn í sína stefnu. Ég vil taka undir það sem þar segir, með leyfi forseta:
„Í heimi þar sem er ofgnótt upplýsinga en skortur á visku og þekkingu til að nýta þær á réttan hátt verða háskólarnir miðpunktur. Þeir eru sú stoð sem samfélagið treystir til að öðlast skilning á og finna lausnir á þeim vandamálum sem heimurinn stendur frammi fyrir.“
Þetta orðar Eyjólfur Guðmundsson háskólarektor mjög vel að mínu mati. En það verður þá að veita háskólunum svigrúm og tækifæri til að vera þátttakendur í þeim öru breytingum sem við þurfum á að halda. Þeir þurfa að vera með okkur í liði og fá tækifæri til að vera með okkur í liði. Það er náttúrlega búið að vera dásamlegt að fylgjast með þróuninni hjá Háskólanum á Akureyri sem var stofnaður fyrir rúmum 30 árum, sjá hvernig hann er að fara úr einum fasa í annan og byggja sig markvisst upp og styrkja grundvallarstoðirnar, hvort sem er í kennslufræðinni, hjúkrunarfræðinni og við sjáum lögreglunámið tekið núna föstum tökum. Það er ákall eftir því af hálfu skólans en líka umhverfisins, nærumhverfisins sem og fjær í kringum Akureyri, atvinnulífið og fleiri eru að kalla eftir því að það verði hægt að bjóða upp á tæknifræðinám til þess einmitt að ýta undir það sem Háskólinn á Akureyri hefur haft mjög mikla sérstöðu um, hvernig hann hefur náð að þróa sig bæði í tækninni, í fjarnáminu en líka í sveigjanlegu námi sem leggur áherslu á tengsl háskólans við þekkingarsetur sem m.a. starfa á landsbyggðinni. Þannig að um leið og við segjum já, við þurfum að styrkja Háskólinn á Akureyri og þá styrkjum við landsbyggðirnar, þá erum við líka að þétta netið í samfélagi okkar allra um land allt. Við þurfum á öflugu atvinnulífi að halda, öflugum háskólum, hvort sem er norðan heiða eða sunnan. Þess vegna vil ég taka undir það sem segir í stefnu Háskólans á Akureyri, að það verði boðið upp á tæknifræði og aukin áhersla lögð á umhverfis- og náttúruvísindi með sjálfbærni og gagnkvæma yfirfærslu þekkingarinnar milli háskólans og samfélagsins að leiðarljósi. Þetta aukna námsframboð (Forseti hringir.) mun höfða til breiðari hóps nemenda og tekur mið af þörf í atvinnulífinu í kringum skólann. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) hvort hún muni beita sér fyrir því að háskólinn geti tekið upp tæknifræðinám sem hann stefnir að.