tæknifræðinám við Háskólann á Akureyri.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að taka þetta upp hér á þinginu, enda gríðarlega mikilvægt að við ræðum um háskólamenntun og það framboð sem er í boði hvar sem er á landinu. Með vísan til fyrirspurnar hv. þingmanns er rétt að það komi fram að Háskólinn á Akureyri hefur ekki viðurkenningu ráðherra til að bjóða upp á nám í tæknifræði og að sinni er því ekki hægt að bjóða upp á slíkt nám við háskólann, ekki fyrr en fyrir liggur beiðni um slíka viðurkenningu og svo slík viðurkenning frá ráðherra. Aftur á móti hefur skólinn aðkomu að kennslu í tæknifræði á Austurlandi í samstarfi við Háskólann í Reykjavík sem nýtur þessarar viðurkenningar og mætti, ef vilji stendur til, koma á slíku samstarfi líka á Akureyri með hraðari hætti, og það er eitthvað sem þarf að ræða, svipað og nú er í boði í tölvunarfræði við Háskólann á Akureyri sem gengur ótrúlega vel. Samvinna Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík er algerlega til fyrirmyndar. Það hefur gengið vel í tölvunarfræði fyrir norðan og það er fordæmi sem gæti styrkt og bætt framboð á ýmiss konar námi á landsbyggðinni og við ættum að skoða það betur. Óski skólar hins vegar eftir liðsinni ráðuneytisins um að efla nám af slíku tagi, eins og tæknifræðinám eða annað nám sem eftirspurn og vöntun er eftir, eins og ég hef heyrt sjálf að norðan, sérstaklega þegar horft er til framfara í samfélaginu, þá má gera ráð fyrir miklum stuðningi þess ráðherra sem hér stendur, eins og mögulegt er. Almennt vil ég líka nefna að ég bind miklar vonir við að framtíðarsýn skólans verði að veruleika og mun gera mitt til að svo geti orðið.
Sem ráðherra nýsköpunarmála hef ég líka mikinn áhuga og vilja til að efla nám í tæknifræði víðar á landinu en bara í Reykjavík. Hér er verið að ræða fjölfaglegt nám með mjög skýrar tengingar við nýsköpun og tækniþróun í atvinnulífinu öllu sem undirbýr nemendur fyrir mjög mikilvæg störf framtíðarinnar. Eins og stendur eru viðurkenndar námsleiðir í tæknifræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík og þau eru í stöðugri samkeppni við verkfræðina m.a. eftir nemendum þar sem við þurfum að fjölga nemendum í báðum þessum greinum. Það er svo að fyrirtæki á vinnumarkaði, og það heyri ég hvort sem það er á höfuðborgarsvæðinu eða úti á landi, kalla mikið eftir fólki með hæfni sem tæknifræðingar tileinka sér í námi og starfi. Af þeim sökum er rosalega brýnt að hugsa kosti þess að koma upp kennslu í tæknifræði sem víðast. Það er ekki síður mikilvægt að mínu mati, og ég hef alltaf verið sérlegur áhugamaður um það, að horfa á ákveðinn sveigjanleika fyrir háskólana við innritun nemenda þannig að þeim sem ekki uppfylla formlegu inntökuskilyrðin sé boðið að þreyta stöðupróf eða undirgangast raunfærnimat eða stöðumat þar sem leitað er eftir hvort þeir hafi þann undirbúning sem þarf fyrir þetta háskólanám. Það eru ekki síður einstaklingar með starfsreynslu af ýmsum toga sem sækja í þetta nám og koma með þá reynslu inn í háskólann, hvort sem hún er úr rafmagnstæknifræði, úr orkugeiranum eða byggingargeiranum. Þeir eru líka oft með grunnnám í iðn- og verkgreinum og eru að leitast við að bæta við sig námi í tæknifræði. Það er mikilvægt að horfa á þá starfsreynslu og þekkingu sem þessir einstaklingar koma með í farteskinu inn í námið en ekki bara á hvítan koll. Fyrir þessu hef ég verið talsmaður lengi og mun halda áfram að beita mér fyrir því í ráðuneytinu.
Að lokum og að því sögðu vona ég að vilji minn sé mjög skýr, bæði sem nýsköpunarráðherra og sem háskólamálaráðherra, hvað varðar eflingu náms í tæknifræði á landinu. Eitt helsta tólið sem mikilvægt er að klára er auðvitað nýtt fjármögnunarlíkan háskólanna sem hefur verið staðnað allt of lengi og frosið í raun. Þetta er tól fyrir ráðherra til þess að koma sínu að í þeirri vinnu og að það séu réttir hvatar fyrir háskólana, ekki bara fjöldi eins og verið hefur. Það hefur verið mikið ósætti um það fjármögnunarlíkan sem var virkt og hefur nú verið fryst. Við þurfum einfaldlega að hafa mjög góða yfirsýn yfir það hvernig peningunum er varið, hvert þeir eru að fara í háskóla og hvernig við getum eflt þá og aukið sveigjanleika og möguleika þeirra, einmitt eins og hv. þingmaður nefndi, svo þeir fái aukið svigrúm til að bjóða upp á fjölbreytt nám víðar um land.