tæknifræðinám við Háskólann á Akureyri.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við þarft umræðuefni, tæknifræðinám við Háskólann á Akureyri sem, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, er ákveðinn vísir að í gegnum samstarf Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri við atvinnulíf og sveitarfélög á Austurlandi. Er mikilvægt að það samstarf víkki út til þess að flýta því að hægt sé að bjóða tæknifræðinám víðar. Á Norður- og Austurlandi er bæði mikið ákall atvinnulífsins og samfélaganna um tæknifræðinám og góður jarðvegur þar sem hlutfallslega margir útskrifast úr iðn- og starfsnámi miðað við víða annars staðar á landinu. Auk þess skiptir mjög miklu máli að í boði sé háskólanám sem höfðar til fólks í þeim atvinnugreinum þar sem er hærra hlutfall karlmanna en kvenna og það virkilega vantar framboð af háskólanámi tengdu atvinnulífinu á þessu svæði.