tæknifræðinám við Háskólann á Akureyri.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að það var hressandi að hlusta loks á ráðherra í þessum málaflokki sem greinilega ætlar að hlusta og gera meira en að hlusta og fylgja eftir óskum og beiðni um að styrkja háskólann. Mér finnst þetta gott og mér finnst mjög jákvætt að heyra þennan skilning og skynja hann hér. Ég vil taka undir þetta með reiknilíkanið. Það er, með fullri virðingu ætla ég að fá að sletta, „no brainer“ að fara í það að klára reiknilíkanið. Það má ekki vera til trafala fyrir þá þróun innan háskólanna að efla sig og dafna í takt við nýja tíma. Reiknilíkanið þarf að uppfæra í takt við nýja tíma. Raunfærni — það sem mér finnst náttúrlega alveg ótrúlega sjarmerandi við tæknifræðina er að við erum að fá svo ólíka hópa inn í háskólana, ekki síst reynslubolta úr atvinnulífinu og þá verðum við að vera með dyrnar opnar. Það er reyndar mín skoðun og hefur verið lengi, af því að ráðherra talaði um hvítu kollana, að það eigi að vera hvítir kollar hvort sem menn og konur eru að koma út úr iðnnámi, starfsnámi eða bóknámi. Það sama ætti að gilda um alla og vera sami aðgöngumiði fyrir alla inn í háskólana. Mér fannst því hressandi að heyra þetta frá hæstv. ráðherra. Ég vil hvetja hana áfram, þó það sé ekki kominn þessi formalismi með beiðnina þá liggur samt alveg skýrt fyrir að Háskólinn á Akureyri vill gjarnan koma upp tæknifræðinámi. Um leið fögnum við allri samvinnu, til að mynda Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri, sem er alveg frábært að sjá hvernig hefur þróast. Það hefur verið mjög dýrmætt innlegg inn í samfélagið og inn í atvinnulífið hvernig þeir skólar hafa unnið saman. En ég vil hvetja ráðherra til að stíga skrefið af því að þetta liggur skýrt fyrir: Háskólinn á Akureyri vill koma upp tæknifræðinámi. Þá eigum við einfaldlega að segja: Já, við ætlum að styðja hann til þess.