tæknifræðinám við Háskólann á Akureyri.
Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en glaðst yfir þessari skýru stefnu Háskólans á Akureyri af því að það er ekki hlutverk menntamálaráðherra hverju sinni að hlutast til um námsframboð skólanna heldur einmitt að leitast við að styðja þá, greiða leiðina, athuga hvar sé hægt að auka sveigjanleika. Samstarf háskólanna, af því að það var nefnt aðeins, að búa til hvata til slíks í meira mæli úti um allt land, mun efla bæði gæði og framboð á háskólastiginu fyrir nemendur. Varðandi tæknifræðina sérstaklega er mikið ákall eftir slíku námi og slíkri þekkingu og hér erum við komin í umræðu sem kristallast í þörfum atvinnulífsins fyrir þekkingu og menntun. Það er í raun það sem við erum að ræða hér undir þessari fyrirspurn sem einskorðast við eitt nám við einn skóla, þörf atvinnulífsins fyrir þekkingu og menntun sem við höfum kannski ekki sett nægilega vel á dagskrá og rætt hvað þýðir. Það þýðir ekki það að elta atvinnulífið og móta skólann eftir því, heldur snýst það um að sækja fram og átta sig á því eftir hverju eftirspurnin er, af því að það er samfélögunum til góða. Það er samfélögunum til góða að finna hvar vantar starfsmenn, hvar áhuginn er og hvernig við getum eflt nám á þeim sviðum. Það hlýtur að vera verkefni ráðherra háskólamála að hlusta á og finna og stjórna síðan og taka það með sér í þá vinnu sem fjármögnunarlíkan háskólanna er. Ég þakka fyrir bjartsýnina frá hv. þingmanni og fyrirspyrjanda varðandi að klára það mál. Það verður eitt af forgangsmálum mínum í þessu ráðuneyti en er eflaust mál sem tekur samt einhvern tíma.