152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:31]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin kynnti stjórnarsáttmála í nóvember, var það ekki? Þar er fjallað um það hvernig eigi að bæta, auka og efla hitt og þetta. Við höfum svo beðið eftir þingmálum og konkret aðgerðum. Hér undir þessum lið höfum við t.d. gagnrýnt það hve þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er ofboðslega rýr og dagskráin hér á þinginu eftir því. Allt saman algerlega úr takti við yfirlýsingar ráðherra í fréttatímum. Nú er komin fram fjármálaáætlun. Hvað sjáum við þar? Jú, þar sjáum við alveg ótrúlegt skeytingarleysi gagnvart almannaþjónustu í landinu. Við sjáum alveg gríðarlegt útgjaldaaðhald og vanfjármögnun í sameiginlegu kerfunum okkar, sameiginlegu stofnunum okkar. Allt er þetta þvert á fögur fyrirheit í stjórnarsáttmála. Ég vona að það séu einhver mál á leiðinni. (Forseti hringir.) Ég vona að þessari fjármálaáætlun verði bara kastað eitthvert út í hafsauga og ný lögð fram. Þetta er algjörlega úr takti við það sem hefur verið lagt upp með og það sem var talað um í kosningabaráttunni í haust. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)