um fundarstjórn.
Forseti. Við erum hérna átta flokkar, misstórir. Við höfum mismikið pláss í nefndum. Nú er það svo að það eru fimm flokkar í stjórnarandstöðu í fjárlaganefnd. Þrír stjórnarandstöðuflokkar eru þar með fastan fulltrúa og tveir flokkar eru með áheyrnarfulltrúa. Okkur var öllum boðið á fund fjármálaráðherra til að kynna þessa merkilegu eða ómerkilegu fjármálaáætlun í morgun nema tveimur áheyrnarfulltrúum, sem sitja hérna, Guðbrandi Einarssyni og Bergþóri Ólasyni. Það gleymdist. Þannig að úr varð, vegna eðlilegra annarra forfalla, að ég var sá eini úr stjórnarandstöðunni sem sat á þessum fundi. Það var mjög kúnstugt, mjög áhugaverð upplifun verð ég að segja. Ég er ekki segja að ég hafi haft nóg að gera til að sinna störfum stjórnarandstöðunnar á þeim fundi (Forseti hringir.) en ég er samt ekki í þeirri stöðu, það er hver og einn flokkur fyrir sig og það verður að bjóða öllum.