152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:34]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Þegar ríkisstjórnin tók til starfa síðastliðið haust taldi hún hag sínum betur borgið í því að beita áður óþekktu meirihlutaræði til að fjölga eigin nefndarmönnum í fastanefndum Alþingis, þvert á varnaðarorð okkar sem töldum það hafa neikvæð áhrif á störfin hér á þingi og neikvæð áhrif á framkvæmdina hér á þingi og á lýðræðið. Við höfum séð ýmis merki þess að þetta hafi verið vanhugsað en eitt skýrasta dæmið var í gærmorgun, þegar það fórst fyrir að boða þá tvo þingmenn stjórnarandstöðunnar sem þurfa, vegna þessarar valdbeitingar, að sinna starfi sínu í fjárlaganefnd án þess að vera fastir meðlimir á kynninguna. Þeim var bara ekki boðið á kynninguna. Nú geri ég ráð fyrir því að það hafi verið mistök en það eru nákvæmlega þessi mistök sem þetta fljótræði, þessi valdbeiting, þetta hugsunarleysi, þetta mikilmennskuæði stjórnarflokkanna leiðir af sér.