152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:36]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegi forseti. Ég hafði sem nýr þingmaður í haust gert mér vonir um að fá sæti í fjárlaganefnd. Það er kannski það sem ég hef svolítinn áhuga á og hef verið að sinna sem bæjarfulltrúi í gegnum tíðina og langaði til að taka fullan þátt þar. Niðurstaðan varð hins vegar sú að vegna þess að meiri hlutinn taldi nauðsynlegt að hafa aukinn meiri hluta þá var mér breytt í áheyrnarfulltrúa. Ég þarf auðvitað sem slíkur að reyna að vinna vel og hafa aðgang að því sem aðrir hafa, m.a. þegar er verið að skrifa nefndarálit og þess háttar. Ég var beðinn um að fylgjast með tölvupósti í gærkvöldi því að hugsanlega ætti að bjóða okkur til fundar við fjármálaráðherra í morgun. Ég beið alveg til miðnættis og ég fékk ekki fundarboð. Svo þegar ég mæti hérna í morgun og spyr: Var ekki haldinn fundur? Jú, það var haldinn fundur (Forseti hringir.) en það bara gleymdist að boða þig. Ég spyr: Eru þetta vinnubrögð sem hægt er að sætta sig við? (Gripið fram í: Nei.)