152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég verð að taka undir þær athugasemdir sem hér hafa komið fram. En ef þetta væri nú það eina, ef maður hefði sannfæringu fyrir því að hlutir eins og þessir kæmu upp af því að menn væru önnum kafnir við að sinna þeim verkefnum sem fyrir þeim liggja, þá gæti maður haft skilning á þessu. Það rifjaðist upp fyrir mér, bara þegar ég hlustaði á þá þingmenn sem hafa tjáð sig hér á undan mér, örlítil fyrirspurn sem ég lagði fram til hæstv. innviðaráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar, um fjárveitingar til nýframkvæmda í vegamálum yfir nokkurra ára tímabil. Ég lagði þessa fyrirspurn fram 2. febrúar 2022. Það eru 55 dagar síðan og það hefur ekki einu sinni verið beðið um frest til að svara þessu ekki. Það hafa engin svör borist. Orðrétt var þessi fyrirspurn lögð fram á síðasta þingi. Síðan eru liðnir 290 dagar og henni var ekki heldur svarað þá. Samskipti ráðuneyta og ríkisstjórnar við okkur þingmenn sem hér erum — og þingmenn stjórnarflokkanna lenda líka í þessu — eru auðvitað þeirrar gerðar að hæstv. forseti verður að hlutast til um (Forseti hringir.) að aðstoða okkur almenna þingmenn við að eiga í forsvaranlegum samskiptum við ríkisstjórnarflokkana og ráðuneytin sem ráðherrar flokkanna fara fyrir.