152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:44]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Já, ég er nýr þingmaður hérna og ég gerði mér vonir um að geta haft einhver áhrif og kannski sérstaklega á hag heimilanna og að verja þau. Ríkisstjórnin hugsar ekki um hag heimilanna en hún er heldur ekki til í að leyfa öðrum að gera það. Engin frumvörp varðandi það komast nokkuð áfram hjá ríkisstjórninni. Þann 17. janúar lagði ég fram frumvarp um að verðtrygging á lánum og leigu yrði fryst í eitt ár, enda ekki vanþörf á því í vaxandi verðbólgu sem í dag er komin upp í 6,7%, ég mun þakka fyrir ef hún fer ekki upp í tveggja stafa tölu. En, nei, við komumst ekki einu sinni áfram með nauðsynleg mál sem ríkisstjórnin hefur engan áhuga á, hún gæti kannski leyft okkur að sinna þeim í staðinn. En þessi aðgerð myndi gagnast best þeim hópum sem verst standa. Án þess að skilgreina þá eitthvað í döðlur þá eru þeir þarna. Það eru þeir sem eru á leigumarkaði og fastir í gildrum verðtryggðra lána. Ég segi bara: Ef ekki núna, hvenær á þá að grípa til einhverra aðgerða til að verja þessi heimili?