um fundarstjórn.
Frú forseti. Rétt eins og aðrir sem komið hafa hingað upp þá lenti ég í því að valdagræðgin hjá stjórnarmeirihlutanum var slík að ég endaði sem áheyrnarfulltrúi í utanríkismálanefnd. Það var sameiginlegur vinnufundur milli ráðuneytisins og utanríkismálanefndar um daginn og þegar ég mætti á svæðið var ég ekki á listanum. Þrátt fyrir að ég hefði reyndar fengið fundarboðið, þökk sé nefndarformanni og nefndarritara, hafði ráðuneytið gleymt að setja áheyrnarfulltrúana á heimsóknarlistann. Sem betur fer er öryggiseftirlitið á Íslandi ekki þannig að sækja þurfi um slíkt með margra daga fyrirvara þannig að ég fékk nú gestapassann. En ég held, frú forseti, að það væri mjög gott ef það væri tekið saman fyrir ráðuneytin hverjir eru í hvaða nefndum, líka sem áheyrnarfulltrúar, og það sent til ráðuneytanna svo að þau geti boðið réttum aðilum á fundi.