um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Öll þau ár sem ég hef verið á þingi hefur verið talað um að koma á nýjum vinnubrögðum, hífa upp virðingu Alþingis, en alltaf endar þetta á nákvæmlega sama stað. Ríkisstjórninni finnst alveg sjálfsagt mál að stjórnarandstaðan fylli málaskrár þeirra í byrjun þings. Það er sjálfsagt mál að þau mál fari inn í nefndir meðan ríkisstjórnin hefur ekkert fram að færa. En þegar ríkisstjórnin þykist vera orðin tilbúin þá á að valta yfir stjórnarandstöðuna. Þá erum við ekkert með í þeim málum. Ég hef furðað mig á því hvers vegna ríkisstjórnin hagar sér svona en ég held að skýringin liggi í því að þeir voru að fjölga ráðherrum og þeir eru enn ekki búnir að fatta hvaða ráðherra er í hverri stöðu og hvað ráðuneytin heita. Ég held að þeir séu bara ekki búnir að kortleggja (Forseti hringir.) hvaða ráðherra á að leggja hvað fram og þar af leiðandi verðum við að vorkenna þeim. (Forseti hringir.) En við munum aldrei líða svona vinnubrögð.