um fundarstjórn.
Frú forseti. Í ljósi orða hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar hér um að við gætum haft samúð með þeim ráðherrum sem eru að koma sér fyrir í nýju embætti þá nær hún ekki til þess að þeir séu að dunda sér við það að velja skrifborð og stóla í hálft ár. Þeir verða að setja sig í stand á einhverjum tímapunkti. En mig langar í ljósi orða hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar að biðla til hæstv. forseta að vera með okkur stjórnarandstæðingum í liði vegna þess að það blasir við að það var beinlínis tekin pósitíf ákvörðun hjá stjórnarflokkunum að hætta þessari sýndarmennsku er varðar eflingu þingsins. Það var tekin ákvörðun um að hætta því. Það hefði verið svo ódýrt að leyfa þessu að damla inni. Ríkisstjórnin kom hvort sem er svo litlu í verk á kjörtímabilinu að það hefði bara verið til bóta fyrir þau að viðhalda þessu markmiði þótt ekkert hafi gerst með það. Þannig að ég biðla til hæstv. forseta að standa með okkur stjórnarandstæðingum í þessu verkefni því að í öllu sem gerst hefur á þessu kjörtímabili er snýr að nefndaskipan blasir við að sú sýndarmennska sem viðhöfð (Forseti hringir.) var á liðnu kjörtímabili, það á ekki einu sinni að flagga því flaggi lengur. Nú skal keyrt yfir þetta af fullum þunga.