um fundarstjórn.
Frú forseti. Mér finnst þetta mál dálítið dularfullt, að gleyma að bjóða þingmönnum. Þetta er augljóslega ekki vandamál Alþingis, það er mjög skýr síða þar sem hægt er að fara inn á nefndir og skoða hverja nefnd fyrir sig. Fjárlaganefnd: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Haraldur Benediktsson, Eyjólfur Ármannsson, Björn Leví Gunnarsson, Bryndís Haraldsdóttir, Kristrún Frostadóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Vilhjálmur Árnason og Þórarinn Ingi Pétursson og áheyrnarfulltrúar eru Bergþór Ólason og Guðbrandur Einarsson. Það stendur alveg skýrum stöfum hverjir eru í fjárlaganefnd. Ég myndi vilja biðla til forseta að forvitnast aðeins um þetta verklag því þetta lyktar dálítið af gamla mátanum, að það séu yfirleitt það fáir flokkar að það sé alltaf einhver flokkur með fastan fulltrúa, þar af leiðandi ekki þörf fyrir áheyrnarfulltrúa. Breyttir tímar. En skipulag í ráðuneytunum virðist ekki hafa verið uppfært til að taka mið af því. Það eru meira að segja tölvutæk skil á því hverjir eru nefndarmenn í hverri nefnd, aðgengilegt á tölvutæku forritanlegu formi á vef Alþingis. Ef ráðuneytin væru tölvutæk væru þetta einfaldlega sjálfkrafa upplýsingar sem þau fengju í kerfinu hjá sér.