um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég verð að fá að beina umræðunni aftur að nefndasetu stjórnarandstöðunnar og um leið taka undir með öllum þeim sem hingað hafa komið og talað um hana. Hér er rétt að minna á að stjórnarandstaðan er með 41% þjóðarinnar á bak við sig en ríkisstjórnin telur rétt að það endurspeglist í 12,5% nefndarformennsku. Þessi lítillækkun á störfum minni hlutans, á störfum fulltrúa 41% þjóðarinnar, var réttlætt með því að samstarfið hefði ekki gengið nógu vel á síðasta kjörtímabili. Þessi staða er ekki ný, t.d. var Stjórnarráðinu umturnað án nokkurrar aðkomu Alþingis, ekki einu sinni ráðherrarnir sjálfir, sem eru jú líka þingmenn, höfðu nokkuð um nýju ráðuneytin eða verkaskiptinguna að segja. Þetta ákváðu þrír einstaklingar, formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja, á lokuðum fundi sín á milli. Þessi skipan þeirra, sem þingmenn í þingræðisríki fengu engu um ráðið, mun að lágmarki kosta tæpa 2 milljarða á kjörtímabilinu. Til að setja það í samhengi er áætlað að full niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu kosti 1,7 milljarða.