um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að nefna opinn fund efnahags- og viðskiptanefndar í morgun þar sem rætt var um fjármálastöðugleika. Gestir fundarins voru seðlabankastjóri og aðstoðarseðlabankastjóri. Þar nefndi seðlabankastjóri að vextir á Íslandi væru neikvæðir í dag og í raun væri verið að færa fjármuni frá þeim sem ættu peninga yfir til þeirra sem væru með lán. En á sama tíma sjáum við að þeir sem tóku óverðtryggð lán við bestu aðstæður, þegar vextir voru hvað lægstir, hafa verið að glíma við mikinn útgjaldaauka vegna breytinga á vöxtum, allt að 30–40 þús. kr. á mánuði sem þýðir að launin hefðu þurft að vera 50–60 þús. kr. hærri til að standa undir þeirri viðbótarafborgun sem fólk þarf að undirgangast núna.
Fulltrúar Seðlabankans sögðu líka: Hvaða áhrif þetta hefur á heimilin er annað mál. Ég velti fyrir mér: Hver er samúðin með þeim sem illa standa í þessu samfélagi ef þessi orð eiga að gilda um það til hvaða ráðstafana á að grípa í framhaldinu?