152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:54]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ég vildi bara í ljósi þessarar umræðu, eða upphafs hennar, um að áheyrnarfulltrúar hafi ekki verið boðaðir í morgun í fjármálaráðuneytið segja að ég náði á hv. þm. Guðbrand Einarsson til þess að biðja hann afsökunar, þó að það væri nú kannski ekki mitt vegna þess að það var jú ráðuneytið sem boðaði til fundarins. Mér þykir þetta samt mjög leitt vegna þess að það skiptir máli að við sitjum öll við sama borð þegar við erum að fá upplýsingar beint frá ráðuneyti eins og þessar í morgun, þó að þær hafi svo sem komið í fjölmiðlum klukkutíma seinna. Það breytir því ekki að við eigum öll rétt á þessu. Ég áréttaði það, svo að það sé sagt hér, við ráðuneytið að muna eftir því að setja áheyrnarfulltrúa á sinn lista og að við gætum ekki unað við að þetta myndi gerast aftur. Bara svo að það sé sagt hér var þeim skilaboðum algerlega komið áleiðis til ráðuneytisins að þetta væri ekki boðlegt.