framlagning stjórnarmála.
Virðulegur forseti. Ég held að það hafi kannski verið mistök að boða ekki áheyrnarfulltrúann á þennan fund en ég held samt ef við horfum á vinnubrögð ríkisstjórnarinnar að hún hafi alltaf haft tilhneigingu til að skilja einhvern út undan. Hún skilur alltaf einhvern út undan. Hverjir eru skildir út undan? Jú, t.d. fólk sem á við áfengis- og vímuefnavanda að stríða, geðfatlaðir og líka fatlaðir. Ríkisstjórnin var einmitt að kynna fjármálaáætlun í morgun og hverjir haldið þið að hafi verið skildir þar eftir út undan? Sami hópur. Þetta er hópurinn sem mun ekki einu sinni fá þennan fræga kaupmátt sem fjármálaráðherra er alltaf að tala um. Það hefur enginn kaupmáttur komið til þeirra verst settu á Íslandi. Þeir verða bara fátækari og fátækari og verða að herða sultarólina. Þeir fá ekki einu sinni verðbólguna bætta, ekki nálægt því.