152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

störf þingsins.

[13:59]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Frú forseti. Undanfarið hefur verið hávær umræða um orkuþörf Íslendinga til nánustu framtíðar. Þær myndir sem dregnar eru upp eru flestar á einn veg; að virkja meira, hraðar og betur. Aukinni orkuþörf þarf þó að mæta af skynsemi. Við þurfum að velja vel þá kosti sem best fara saman við náttúruvernd, kynna okkur nýja möguleika og framfarir í orkumálum. Sporin hræða og ljóst að náttúran má sín oft lítils þegar almannahagsmunir eru taldir í gígavöttum. Þann 30. nóvember árið 2007 var Kárahnjúkavirkjun formlega gangsett. Jökulsá á Dal var virkjuð með þremur stíflum, Kárahnjúkastífla stærst þeirra, rúmir 200 metrar á hæð. Þá var talað um að ekki þyrfti að virkja framar á Austurlandi, að ósnortin víðerni önnur en þau sem fóru undir Hálslón yrðu látin vera. Nú 15 árum seinna eru uppi virkjunaráform vegna Geitdalsvirkjunar í Skriðdal í Múlaþingi, hugmynd sem hingað til hefur verið umdeild í ljósi þess að hún stendur utan þess hluta hraunasvæðis sem raskað var vegna Kárahnjúka, mestu náttúruspjalla sem orðið hafa af manna völdum hér á Íslandi. Þá skýtur það skökku við að áformin koma nú fram á sama tíma og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fól óbyggðanefnd að gera tillögur að þjóðlendum á Austurlandi hvar Geitdalsá rennur og að hluti áætlaðs framkvæmdasvæðis sé innan miðhálendislínu. Orkuumræðan gengur að miklu leyti út á að hér séu allir virkjunarkostir grænir, að Ísland geti og beri til þess skylda gagnvart loftslagsvánni að framleiða eins mikið af orku og mögulegt er. Þá er mikilvægt að muna að það er náttúra Íslands sem er undir 57 ferkílómetra miðlunarlóni Kárahnjúka, ekki hagsmunir bandarískra álfyrirtækja. Þá er mikilvægt að muna að Kárahnjúkar áttu að duga Austurlandi fyrir orku um ókomna tíð. Höfum það til höfðalags að orkustefna sem byggir á framboði og eftirspurn er fullkomlega óseðjandi. (Forseti hringir.) Forgangsröðum íslenskri grænni orku til orkuskipta og íslenskra heimila og fyrirtækja.