störf þingsins.
Frú forseti. Íbúar í byggðarlögum við Breiðafjörð horfa nú til þess hvernig þeir geta tengt betur saman samfélögin við Breiðafjörðinn, til að styrkja þau sem eina heild inn í framtíðina. Síðasta laugardag gerðist það loks, eftir nokkrar tilraunir, að samþykkt var að Stykkishólmur muni nú sameinast minni gömlu heimabyggð, Helgafellssveit. Náið samstarf hefur verið á milli sveitarfélaganna í áratugi og þau í raun eitt þjónustu- og atvinnusvæði sem Grundarfjörður hefur einnig verið að tengjast betur í kjölfar bættra samgangna og aukins samstarfs. Það svæði spannaði í enn ríkara mæli á fyrri tíð einnig Skógarströnd og Dali.
Íbúar í Dalabyggð ræða einmitt nú hvert beri að stefna til framtíðar og leiðir til að efla blómlega byggð í Dölum. Síðustu helgi átti ég einmitt leið um nágrannasveitarfélag hins sameinaða sveitarfélags Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar Dalabyggð. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera boðið á fjölmennt og velheppnað íbúaþing í Búðardal. Þar var fjallað um leiðir til að efla byggð í Dölum til framtíðar, skerpt á áherslum og margar góðar tillögur til að fylgja eftir í verkefni sem hlaut nafnið Dala-Auður, samstarfsverkefni Byggðastofnunar Brothættar byggðir.
Það eru mörg hagsmunamál sem þarf að berjast fyrir í þágu Dalamanna. Eitt þeirra eru endurbætur á veginum um Skógarströnd sem fólki varð tíðrætt um, sem ég hef einmitt komið á dagskrá hér í þinginu, hef lagt fram þingsályktunartillögu um það efni sem liggur nú hjá umhverfis- og samgöngunefnd til eftirfylgni. Samgöngur eru lykill að sameiningum og varð ég þess áskynja um núliðna helgi að bættar samgöngur um Skógarströnd væru helsta fyrirstaða þess að hefja alvörusamningaviðræður í vesturátt. Vil ég hér leggja sérstaka áherslu á mikilvægi þess að hraða uppbyggingu heilsársvegar um Skógarströnd og þverun Álftafjarðar. Þau svæði sem nú um ræðir eru búsetulega og menningarlega tengd og deila sameiginlegum sagnaarfi og mannlífi allt aftur til landnáms. (Forseti hringir.) Það er mikilvægt að halda utan um slíka þætti þegar litið er til sameiningar, að svæðin eigi sér sameiginlega sögu sem styrki svæðið og efli byggðina sem eitt samfélag.