152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Verðbólgan er komin í 6,7% og mælist nú langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og þar er stærsti einstaki orsakavaldurinn sífellt hækkandi húsnæðisverð. Nú er verðbólgan sem sagt 6,7% en án húsnæðisliðarins væri hún 4,6%. Heimilin munar um 2,1 prósentustig. Þetta veldur keðjuverkandi áhrifum sem leiða til þess að greiðslubyrði heimilanna þyngist og lánin hækka til muna.

Í öðru lagi spá helstu greiningaraðilar áframhaldandi hækkun á húsnæðisverði, m.a. vegna framboðsskorts á húsnæði. Það er því útlit fyrir verulegar hækkanir á vísitölu neysluverðs á næstu misserum, beinlínis vegna hækkandi húsnæðisverðs. Skortur á framboði á húsnæði er ekki fólkinu í landinu að kenna. Þar þurfa stjórnvöld, bæði sveitarstjórnir og ríkisstjórnin, að líta í eigin barm. Hækkunum sem skortur á húsnæði veldur á alls ekki að velta yfir á heimili landsins sem bera enga sök á því ástandi. Það að álögur hækki á almenning og heimili vegna klúðurs sem stjórnvöld bera ábyrgð á, hvort sem um er að ræða sveitarstjórnir eða ríkisstjórnina, nær ekki nokkurri átt og er hreinlega ekki í boði. Það er ekki fyrirsjáanlegt að húsnæðisverð lækki á næstunni. Ég hef frá fyrstu hendi upplýsingar um hvernig staðan er fyrir þau sem eru að leita sér að húsnæði um þessar mundir. Það má helst líkja markaðinum við úlfagryfju þar sem tugir skoða og jafnvel bjóða í hverja íbúð og þær seljast langt yfir ásettu verði, jafnvel yfir 15%. Húsnæðisverð hlýtur því að fara hækkandi á næstu vikum, mánuðum og árum.

Svo má náttúrlega ekki gleyma þeim sem eru á leigumarkaði. Greiðsluseðill sem ég hef séð var upp á 280.000 kr. í janúar 2020 og sama fólkið í sömu íbúð greiddi 310.000 kr. í leigu í janúar á þessu ári. Miðað við þá verðbólgu sem orðin er og er fyrirsjáanleg mun leigan þeirra væntanlega hækka um a.m.k. 20.000 kr. í viðbót á þessu ári. Miðað við verðbólguspá, Covid, stríð í heiminum og ört hækkandi húsnæðisverð — við verðum að laga þetta. Húsnæði er ekki neysluvara í nokkrum skilningi þess orðs, það á að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni. Það bjargar ekki öllu en væri viðspyrna gegn hörðustu áhrifum verðbólgunnar á heimilin. Sú einfalda framkvæmd er það minnsta sem við getum gert.