152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

störf þingsins.

[14:06]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Flestir eru sammála um að nýsköpun sé besta leiðin til að skapa fjölbreyttara atvinnulíf og til að skapa verðmæti, leiðin til að laða hingað fólk og til að halda í fólk. Þess vegna er það auðvitað í þágu okkar allra að nýta krafta og þekkingu allra sem í nýsköpun starfa. En staðan er hins vegar önnur. Nýleg skýrsla sem tók út vísifjárfestingar árið 2021 fjallaði um 25 fyrirtæki. 22 þessara fyrirtækja voru eingöngu skipuð karlmönnum, þrjú fyrirtæki voru blönduð, ekkert kvennafyrirtæki fannst.

Forseti. Þurfa konur þá kannski bara að vera duglegri að stofna fyrirtæki? Nei. Vandamálið er ekki að konur fatti ekki að stofna fyrirtæki eða að þær fái ekki góðar hugmyndir. Þær njóta hins vegar ekki sama aðgangs að fjármagni. Fjármögnun vísisjóðanna er konum óhagstæð. Einn sjóðurinn, Crowberry Capital, hefur skráð kynjahlutföll þeirra fyrirtækja sem sækjast eftir fjárfestingu hjá honum. Þar voru 25% fyrirtækjanna eingöngu skipuð konum, tæp 60% karlmönnum eingöngu, en afgangurinn blönduð fyrirtæki, sem sagt fullt af konum. Þannig að hin pólitíska spurning er hvers vegna aðgangur kvenna í nýsköpun er takmarkaðri að fjármögnun en karla. Erum við sem samfélag á tánum gagnvart meðvituðum og kannski ekki síst ómeðvituðum fordómum eða hugsunum um kynin? Þessir sjóðir fara með stærstan hluta fjárfestingarfjármagnsins. Þeir þurfa að vakna. Lífeyrissjóðirnir okkar hafa úr milljörðum að spila sem fara til þessara sjóða. Hvernig vinnur t.d. Kría, fjárfestingarsjóður á vegum ríkisins? Hefur nýsköpunarráðherra þá sýn að það eigi að horfa til þess hvernig fjármagnið deilist, að við virkjum kraft og hugmyndir kvenna til jafns við karla? Ef við veðjum bara á hugmyndir karla í samfélaginu okkar þá erum við sennilega með því að slá ansi margar góðar hugmyndir og sprota út af borðinu. (Forseti hringir.) Ég vildi vekja máls á þessari stöðu hér inni í þessum sal og vona að nýr nýsköpunarráðherra sé vakandi fyrir stöðunni.