152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

störf þingsins.

[14:08]
Horfa

Hilda Jana Gísladóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við Sjúkrahúsinu á Akureyri blasir gríðarlegur rekstrarvandi og það er ljóst að sjúkrahúsið getur ekki haldið áfram óbreyttri starfsemi. Stjórnendur telja að það vanti um 550 millj. kr. upp á reksturinn og hafa nú þegar ákveðið að grípa til ýmissa ráða, loka t.d. barna- og unglingageðdeild í fimm vikur í sumar og sinna aðeins bráðaþjónustu, loka dag- og göngudeild geðdeildar og sinna aðeins bráðaþjónustu, loka á Kristnesi, sem sinnir öldrunar- og endurhæfingarþjónustu, og draga úr starfsemi almennu göngudeildarinnar og skurðstofunnar meira en áður hefur verið gert. Svo á auðvitað að draga einu sinni enn úr viðhaldi en við vitum að það eru skammgóður vermir og líklegur til að koma í bakið á okkur síðar, auka vandann jafnvel. Þrátt fyrir þetta er það hagræði sem hlýst af þessu aðeins dropi í hafið. Það þarf að grípa til mun viðameiri ráðstafana eigi endar að ná saman. Hvað á að gera? Einhvers staðar þarf þá að draga úr þjónustu. Sjúkrahúsið á Akureyri er ekki aðeins varasjúkrahús landsins heldur hreinlega hornsteinn í heilbrigðisþjónustu í landshlutanum og skiptir gríðarlega miklu máli fyrir öryggi, lífsgæði og samkeppnishæfni landshlutans. Það ætti í rauninni að vera algjört forgangsmál, af því að við tölum nú stundum um mikilvægi forgangsröðunar, að Sjúkrahúsið á Akureyri og sjúkrahúsin í landinu séu þannig rekin að það sé frekar hægt að stuðla að uppbyggingu og hæfni til að takast á við framtíðaráskoranir en að fara í þann ótrúlega niðurskurð sem nú virðist blasa við.