152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

störf þingsins.

[14:11]
Horfa

Iða Marsibil Jónsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég kem frá Bíldudal í Vesturbyggð og hef ákveðið að ljá mínum heimaslóðum rödd mína hér í dag. Ég hef sinnt embætti forseta bæjarstjórnar í Vesturbyggð á líðandi kjörtímabili og m.a. staðið með uppbyggingu atvinnulífs og barist fyrir samgöngubótum. Nú síðustu tíu árin eða svo hefur laxeldi vaxið fiskur um hrygg og nú er svo komið að á síðasta ári streymdu útflutningsverðmæti um hafnir Vesturbyggðar í umtalsverðu magni. Það er bjart yfir á sunnanverðum Vestfjörðum. Um langa hríð hefur ekki verið um auðugan garð að gresja í atvinnulífinu á þessu afskekkta svæði. Því má ég til með að geta þess að íbúar Vesturbyggðar hafa ekki komist í næstu byggðarlög án þess að aka um malarvegi hingað til og vísa ég þá til Teigsskógar og Dynjandisheiðar. Það stendur nú til bóta og leyfi ég mér að beina hrósi til hæstv. innviðaráðherra vegna framgöngu hans í þeim efnum. Íbúar upplifa nú bjartari tíma, vöxt og íbúafjölgun. Sveitarfélagið Vesturbyggð varð til við sameiningu fyrir 28 árum síðan og skilgreinast sunnanverðir Vestfirðir sem eitt atvinnusóknarsvæði. Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur eru þéttbýliskjarnar svæðisins. Í allmörg skipti hvern vetur er lokað eða illfært á fjallvegum innan sveitarfélagsins sem gerir íbúum erfitt um vik bæði við að sækja atvinnu og nauðsynlega grunnþjónustu. Því langar mig að nota tækifærið hér og vekja athygli á og um leið taka undir þá kröfu íbúa að farið verði í jarðgangagerð og þéttbýliskjarnarnir þrír, Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur, tengdir saman á þann eina máta sem samfélagi sem aldrei sefur hæfir.