störf þingsins.
Frú forseti. Það þarf að virkja fyrir orkuskiptin, étur hver upp eftir öðrum, ekki síst eftir að Sjálfstæðisflokkurinn uppgötvaði hið græna gull og það má græða á orkuskiptunum svo um munar. Vandinn er bara sá að þetta er ekki hægt. Það er ekkert í umgjörð raforkumála hér á landi sem gerir stjórnvöldum kleift að ráðstafa raforku til orkuskiptanna. Það er ekki í raforkulögunum, ekki í rammaáætlun, ekki í eigendastefnu fyrirtækja í ríkiseigu. Það er nefnilega ekki búið að innleiða þriðja orkupakkann sem við fengum góðu heilli frá Evrópusambandinu í gegnum EES að fullu. Það þarf að gera. Verkefnið er nefnilega að skilgreina alþjónustu, sem kölluð er Public Service Obligation í pakkanum, þannig að hægt sé að forgangsraða orku í þágu almennings og lítilla fyrirtækja og til orkuskiptanna. Það þarf að skilgreina það þannig að það sé alveg ljóst að það sé sérraforkumarkaður fyrir stórnotendur sem keppa á alþjóðlegum markaði um raforku. Á þeim markaði eiga almenningur og heimili og lítil fyrirtæki ekki að vera. Orkuskiptunum sjálfum þarf svo að forgangsraða. Við þurfum að byrja á landi og við þurfum að ákveða hvernig við gerum það og hversu mikilli orku er hægt að ráðstafa til þeirra. Þar til að öllu þessu er lokið, frú forseti, verður klisjan um nauðsyn nýrra virkjana í orkuskipti ekkert annað en innantóm slagorð. Höfum umgjörðina þannig að í raun og veru sé hægt að vinna að orkuskiptum hér á landi.