störf þingsins.
Frú forseti. Haustið 2020 sagði Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi íþróttamálaráðherra, í sérstakri tilkynningu ráðuneytisins að hún væri vongóð um að þjóðarleikvangur í knattspyrnu risi á næstu fimm árum, fyrir árið 2025. Ekkert hefur bólað á fjármagni af hálfu ríkisstjórnarinnar til þessa mikilvæga verkefnis síðan og í fjármálaáætlun til næstu fimm ára, sem var kynnt í morgun, er ekki gert ráð fyrir þjóðarleikvöngum í íþróttum. Það er bara ekki tímabært — sem er auðvitað fjarstæða því að eins og allir vita þá snýst málið frekar um það að við erum að renna út á tíma. Staðreyndin er sú að á síðustu árum hafa verið unnar úttektir, það hafa verið settir á laggirnar starfshópar og málin hafa verið rædd í þaula. Það er líka stutt síðan Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, lýsti því yfir að allar forsendur væru fyrir hendi að fara í byggingu þjóðarleikvanga og gott ef það yrðu ekki heimaleikir á nýjum þjóðarleikvangi á kjörtímabilinu. Ég spyr, frú forseti: Hversu langt vonast ríkisstjórnin til að þetta kjörtímabil verði?
Þjóðarleikvangar okkar Íslendinga, bæði fyrir inniíþróttir og útiíþróttir, eru börn síns tíma og standast ekki nútímakröfur, ekki fyrir leikmenn, ekki fyrir starfsfólk og ekki fyrir áhorfendur. Fréttir berast nú af því að í kjölfar kynninga á fjármálaáætlun í morgun, fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sé Reykjavíkurborg orðin langþreytt. Hún treysti sér ekki til að bíða lengur með það fjármagn sem þar hefur verið tekið frá ef ekki bóli á því að ríkisstjórninni sé alvara með stóru orðin. Fjármagn Reykjavíkurborgar fari frekar í aðra íþróttainnviðauppbyggingu.
Það þarf að fara að skrifa lokakaflann í þessari annars endalausu sögu ríkisstjórnarinnar um hástemmdar yfirlýsingar hennar, loforð og vanefndir. Þjóðin þarf þjóðarleikvanga sem standa undir nafni og þjóðin þarf ríkisstjórn sem treystir sér í það verkefni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)