störf þingsins.
Frú forseti. Í umræðu um fundarstjórn forseta áðan rifjaðist upp fyrir mér svar sem hæstv. innviðaráðherra hefur dregið mig á í mjög langan tíma, eina 290 daga í heildina. Í framhaldinu rifjuðust upp fyrir mér fréttir af miklu fjárfestingarátaki sem átti að keyra af stað hér síðastliðið sumar með vísan í ástand vegna Covid-faraldursins, en auðvitað höfum við orðið vitni að mörgum fjárfestingarátökum með sambærilegum hætti. Ekki voru liðnir margir mánuðir áður en fréttir fóru að berast af því átaki, svo ég vísi hér í frétt í Fréttablaðinu frá því í desember sl. undir yfirskriftinni: Fjárfestingarátak stjórnvalda vart svipur hjá sjón, bara svo að ég taki eitt dæmi. Það eru ótal sambærilegar fréttir, bæði af greiningaraðilum banka, hagsmunaaðilum, Samtökum iðnaðarins og fleiri, og allt ber það að sama brunni, að framkvæmdaátökin eru meira í orði en á borði.
Allt tengist þetta nú með einum eða öðrum hætti, þetta líf okkar, og auðvitað blasir við núna hvers vegna hæstv. ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson hefur ekki svarað þessum fyrirspurnum frá mér í 290 daga en þar er spurt, með leyfi forseta: Hver er heildarfjárfesting Vegagerðarinnar í nýframkvæmdum í vegakerfinu á árunum 1999–2024 samkvæmt fyrirliggjandi áætlun hvað seinni hlutann varðar? Þetta vildi ég spyrja um til að draga fram hver raunverulegu áhrifin væru. Áfram spurði ég: Hvert er hlutfall nýfjárfestinga í vegagerð af heildarútgjöldum ríkissjóðs fyrir hvert ár tímabilsins? Þriðja spurningin var: Hvert er hlutfall framlaga til nýframkvæmda í vegagerð af vergri landsframleiðslu fyrir hvert ár tímabilsins?
Mig grunar að hæstv. ráðherra svari ekki þessari fyrirspurn af því að svarið lítur ekki nógu vel út. Það er ekki í neinu samræmi við þá mynd sem dregin er upp í endalausum fréttatilkynningum af fjárfestingarátökum sem renna síðan út í sandinn.