152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

störf þingsins.

[14:26]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Skattkerfið 24 ára, almannatryggingakerfið 29 ára, kvótakerfið 39 ára, hegningarlögin 82 ára. Það er óhætt að segja að margar af þessum grunnstoðum íslensks samfélags séu komnar til ára sinna. Sumar eru eldri en við þingmenn sem sitjum hér inni. Allar eiga þær það sameiginlegt að vera frá síðustu öld. Öll eru þessi kerfi mannanna verk og ekki meitluð í stein. Það samfélag sem við búum við hefur svo sannarlega tekið miklum breytingum á þessum tíma en á sama tíma hafa litlar grundvallarbreytingar átt sér stað í þessum kerfum. Þau hafa verið plástruð og plástruð með örlitlum breytingum sem sjaldnast taka nægilega vel á þeim atriðum sem verið er að reyna að vinna í. Á sama tíma heyrum við hæstv. ráðherra kjörtímabil eftir kjörtímabil tala um þörfina á því að fara í gagngera endurskoðun á þessum kerfum. Þeir skipa nefndir sem síðan skila af sér hugmyndum sem oft eru í meiri tengslum við fortíðina en framtíðina.

Virðulegi forseti. Við alþingismenn þurfum að fara að tileinka okkur betri vinnubrögð þegar kemur að endurskoðun slíkra kerfa. Við þurfum þverpólitíska vinnu í að endurskoða þessi grunnkerfi, vinnu þar sem sjónarmið allra hagsmunaaðila eru tekin til skoðunar, hlustað er á rannsóknir fræðimanna, mismunandi pólitískar áherslur og síðan fundnar nýjar og skapandi lausnir á þeim erfiðu vandamálum sem felast í að byggja upp ný og skilvirk kerfi.

Áratugum saman virðist hafa verið farið eftir þeirri óskrifuðu reglu hér á Alþingi að meiri hlutinn og stjórnarandstaðan geti ekki unnið saman og hlustað á eða stutt góðar tillögur hvort frá öðru. Þetta er bara ein birtingarmynd stjórnmálamenningar sem virkar ekki og hægir verulega á nauðsynlegum samfélagslegum framförum. (Forseti hringir.) Já, hæstv. forseti, samfélagið gerir þá kröfu á okkur alþingismenn að við sýnum þroska og breytum þessari stjórnmálamenningu.