störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég heiti Diljá og ég er aðstandandi. Ein af stóru ástæðunum fyrir því að ég tek þátt í stjórnmálum, fyrir því að mig langar til þess að hafa áhrif á samfélagið okkar, eru þau áhrif sem ég hef orðið fyrir af völdum fíknisjúkdóma. Um helgina birtist átakanlegt viðtal í fjölmiðlum við ungan mann og móður hans. Maðurinn hefur glímt við vímuefnavanda hálfa ævina og er einn þeirra fjölmörgu sem bíða eftir því að komast í meðferð, bíða eftir því að fá lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Á meðan hann bíður er það fjölskyldan hans sem styður hann og annast, sérstaklega móðir hans. Við sem höfum þolað þessa bið með sjúklingunum, við sem höfum ekki þorað að slökkva á símanum okkar á nóttunni, við sem höfum hrokkið í kút við það að bankað hefur verið á hurðina hjá okkur af ótta við slæmar fréttir, við vitum hvað þessi bið þýðir. Hundruð sjúklinga sem bíða eftir meðferð, það eru þúsundir aðstandenda sem vaka og sofa yfir örlögum þeirra. Fíknisjúkdómar eru lífshættulegir sjúkdómar og bið fólks með vímuefnavanda eftir meðferð getur verið dauðadómur, biðlistar eru langir og fólk, ungt fólk, týnir lífinu á þeim. Þeir eru í algjörri mótsögn við þá mikilvægu viðhorfsbreytingu sem hefur orðið í samfélaginu í þá átt að fíknisjúkdómar eigi að vera meðhöndlaðir innan heilbrigðiskerfisins. Ég kalla því eftir fleiri röddum héðan, fleiri röddum frá ráðamönnum sem vilja bæta og efla meðferðarúrræði, sem vilja þannig að heilbrigðiskerfið taki á vímuefnavandanum. Það er algjört forgangsmál. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)