störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mikilvægi fjarnáms í framhaldsnámi er óumdeilt. Við höfum séð ágæti þess en það hefur svo sannarlega reynt mikið á fjarkennslu á tímum Covid. Kennarar nýttu tæknina vel til að miðla þekkingu sinni til nemenda og fjarkennsla hefur verið bætt töluvert. Það er mikilvægt að við tryggjum jafnrétti allra til náms. Tæknina skal nýta eins og hægt er þannig að allir geti stundað nám eins og þeim hentar, óháð búsetu, fjölskylduaðstæðum eða öðrum þáttum sem koma í veg fyrir að fólk sæki nám. Svo geta ákveðnar aðstæður komið upp hjá nemendum þar sem tæknin tryggir að þeir missi ekki úr. Heimapróf gegnum tölvu, rafrænir kennslutímar og upptökur af fyrirlestrum auka aðgengi allra að framhaldsnámi. Nemendur hafa fagnað tilkomu tækninnar í náminu og þátttaka þeirra hefur aukist til muna. Nemendur sem áður höfðu ekki tök á að sækja alla kennslutíma og taka fullan þátt í náminu geta það núna á sínum forsendum. Notkun tækninnar bitnar ekki á miðlun þekkingar né skilningi nemenda á efninu. Reynslan úr heimsfaraldrinum hefur sýnt fram á að tæknin er komin á þann stað að engin fyrirstaða er fyrir því að hana sé hægt að nýta til framtíðarinnar, námsmönnum til mikilla hagsbóta. Nú þegar tími Covid fer að líða undir lok þá er mikilvægt að við tökum ekki skref til baka í fyrri aðstæður. Við eigum að halda áfram veginn, hvetja skólayfirvöld til áframhaldandi nýtingar tækni í þágu skólasamfélagsins.