152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:33]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Hæstv. innviðaráðherra var í útvarpinu og sagði, með leyfi forseta: Vonandi klárar þingið á einhverjum tímapunkti, hættir að vera í þeim hægagangi sem það er í núna þar sem ekkert er afgreitt. Stjórnarandstaðan er eiginlega bara með þingið í gíslingu í einhverju málþófi og fundarstjórn. Þess vegna gat ég kíkt hingað þegar ég átti að vera niðri á þingi og get látlaust talað um eitthvað annað og öll mál tekin í gíslingu.

Þetta er dálítið áhugavert viðhorf hjá hæstv. ráðherra því að það er nú einu sinni meiri hluti flokka hér á þingi sem tekur sér dagskrárvaldið. Þau haga málum þannig að mál frá ríkisstjórninni koma inn í þingflokka þeirra og eru rædd fram og til baka o.s.frv. en það er ekkert leitað til hinna þingmannanna sem eru á þingi, ekki neitt. Það er að sjálfsögðu hlutverk okkar að mæta hér í ræðustól Alþingis og kynna málin fyrir þingi og þjóð, benda á gallana, sem við fengum ekki aðkomu að þegar var verið að fjalla um þau, áður en þau komu til þingsins. Þetta er eðlileg lýðræðisleg umræða. Ef stjórnarflokkarnir eru tilbúnir til þess að semja kannski um það hvernig við getum hagað málum hérna, einstökum málum (Forseti hringir.) eins og þessum draslmálum sem er búið að draga til baka, sem við erum búin að benda á að séu léleg, þá er kannski hægt að gera eitthvað betur hérna (Forseti hringir.) en að við þurfum endilega að koma upp hér, af því að það er hægt að tala um það á víðari vettvangi. (Forseti hringir.) En það er ekki gert og meðan það er ekki gert þá þurfum við að sjálfsögðu að sinna okkar lýðræðislega hlutverki og kynna málin fyrir þjóðinni.

(Forseti (OH): Ég vil minna hv. þingmenn á að ræðutími undir fundarstjórn forseta er ein mínúta.)