152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:35]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Ég heyrði líka þessi ótrúlegu ummæli hæstv. innviðaráðherra í gærmorgun. Þetta er auðvitað ævintýralega röng lýsing hjá honum. Það er stjórnarmeirihlutinn sem fer með dagskrárvaldið hér í þinginu. En þessi ummæli endurspegla líka alveg ofboðslegt óþol forystufólks í Framsóknarflokknum fyrir því að það eigi sér stað pólitísk umræða í þessum sal, m.a. um þingmál frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Hér í síðustu viku átti sér stað mjög sérkennileg uppákoma í þinginu þar sem hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra gekk um þingsal meðan þingmenn fjölluðu um frumvarp hennar um listamannalaun. Það voru stjórnarliðar jafnt sem stjórnarandstæðingar sem tóku þátt í þessari umræðu sem var bara hóflega löng, myndi ég segja, u.þ.b. þrír klukkutímar. (Forseti hringir.) Ósköp ágæt umræða sem átti sér stað, en hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra gekk hér um þingsal einhvern veginn ofboðslega önug (Forseti hringir.) og kvartaði jafnvel undan málþófi, fannst alveg óboðlegt (Forseti hringir.) að það væri verið að ræða þingmálið sem hún hafði lagt fram.

(Forseti (OH): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutími í fundarstjórn forseta er ein mínúta og það er ekki að ástæðulausu að það er mikilvægt að virða þessa reglu. Það er ekki síst til að tryggja jafnræði meðal hv. þingmanna.)