um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég tek undir það sem hér hefur verið fjallað um að það er eiginlega orðið vandræðalegt að heyra kveinstafi forsvarsmanna Framsóknarflokksins í fjölmiðlum og í þingsal og á göngum þingsins um það að hér eigi sér stað lýðræðisleg umræða. Það er átakanlegt að fylgjast með þegar ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, ráðherrar Framsóknarflokksins, kvarta yfir umræðu í málum sem þeir setja sjálfir á dagskrá, kvarta yfir því að stjórnarliðar og stjórnarandstöðuþingmenn skuli vera hér í umræðu. Og af hvaða tilefni ákvað formaður Framsóknarflokksins núna að kvarta yfir því að á Alþingi væri fólk að tala saman? Jú, vegna þess að hann þurfti að leggja öðru sinni fram leigubílafrumvarpið sitt (Forseti hringir.) af því að það var svo ónýtt (Gripið fram í: Það var ekki ónýtt.) að það þurfti að draga fyrra frumvarp til baka. (Forseti hringir.) Það var bara þannig að hann þurfti að draga það til baka. Það kom í ljós í 1. umr.