152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:40]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Það er nú skemmtilegt þegar hæstv. innviðaráðherra fer að saka fólk um málþóf þegar við erum að halda uppi pólitískri umræðu í einn eða tvo eða jafnvel þrjá klukkutíma um mál sem eru jafnvel mikil álitamál. Þetta er sami maðurinn og tók þátt í málþófi gegn breytingum á stjórnarskrá vorið 2013 sem stóð 16 klukkutíma í 1. umr. og 24 klukkutíma í 2. umr. Þar erum við að tala um málþóf, Sigurður Ingi Jóhannsson. Þar erum við að tala um málþóf. Hér er ekkert slíkt í gangi. Ef einhverjir eru að halda þinginu í gíslingu núna þá eru það miklu frekar ráðherrarnir. Hér á dagskrá í dag erum við með fjarskiptafrumvarp. Í þriðja skipti er verið að mæla fyrir þessu máli. Hvers konar tímasóun er það? Hver er að halda þinginu í gíslingu þar? Jú, Sigurður Ingi Jóhannsson. Hann lagði það fram tvisvar. Hvað með leigubílafrumvarpið? Við erum að ræða það á þriðja þinginu. Við erum að ræða það í fjórða sinn af því að hæstv. ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson er að halda þinginu í gíslingu með því að leggja málið tvisvar fram, (Forseti hringir.) mæla tvisvar fyrir því á sama þingi. Þetta er Íslandsmet í málþófi ráðherra, frú forseti.