152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:42]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Þetta er bráðskemmtileg umræða, mikilvæg og bráðskemmtileg. Mig langar eiginlega að varpa fram spurningu hérna vegna þess að við höfum rætt aðeins í morgun um fyrirsjáanlegar afleiðingar af þessari valdbeitingu meiri hlutans varðandi fastanefndirnar, afleiðinguna sem er sú að það er bókstaflega verið að ýta þingmönnum út úr nefndastörfum, halda þeim, viljandi eða óviljandi, það er alla vega afleiðing af þessari vitleysu, frá nauðsynlegum upplýsingum og mikilvægum fundum. Önnur birtingarmynd er síðan sú að þessir sömu þingmenn, þessir sömu stjórnarandstöðuþingmenn, stjórnarandstöðuflokkar, sem fá ekki aðgang að nefndastarfinu, þeir munu ræða mál hér í 1. umr. vegna þess að það er aðgengi þeirra að þingstörfum og þannig sinna þeir verkefni sínu sem kjörnir fulltrúar þjóðarinnar.

Ég er með þessa spurningu af því að ég veit alveg að meðal stjórnarliða er bara ágætlega vel gefið fólk og ég spyr í hjartans einlægni: Hvað hélduð þið að myndi gerast, hverjar hélduð þið að afleiðingarnar yrðu? Ég trúi ekki að svarið sé: Við héldum að við kæmumst upp með þetta (Forseti hringir.) þegjandi og hljóðalaust.