152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:43]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Áðan í störfum þingsins ræddi ég um nauðsyn þess að endurskoða ýmsa löggjöf. Hér erum við að fara að ræða löggjöf um eitt af grundvallarkerfunum til framtíðar, fjarskipti. Í salnum eru tveir þingmenn úr þremur stjórnarflokkum. Hæstv. ráðherra sem er að mæla fyrir frumvarpinu hefur ekki látið sjá sig og svo er kvartað yfir því að við séum að halda þinginu í gíslingu. Það er bara enginn áhugi hjá þingmönnum stjórnarmeirihlutans eða ráðherrum að mæta hingað yfir höfuð og tala um málin, mál sem skipta grundvallarmáli til framtíðar. Fjarskipti eru í dag grunnurinn undir allri þeirri framþróun sem er að gerast og þingmenn stjórnarmeirihlutans hafa ekki einu sinni áhuga á því að ræða það, fyrir utan þessa tvo hv. þingmenn sem sitja hér í salnum. En spurningin er hvort þeir séu einnig í Íslandsmeistaramótinu í þagnarbindindi sem stjórnarmeirihlutinn virðist vera kominn í. Ég held að ég láti þetta duga í bili, frú forseti.