um fundarstjórn.
Frú forseti. Þessi verkkvíði ráðherranna er eiginlega alveg ótrúlegur upp á að horfa. Hér þramma þeir inn, hver á fætur öðrum, með mál sem þeir hafa mælt fyrir á fyrri þingum en heyktust á að klára, gera einhverjar snurfusbreytingar, uppfæra ártöl og þar fram eftir götunum, og mæta síðan hingað, mæla fyrir málunum og eru alveg rasandi hissa á því að það sé einhver umræða um þau. Okkur er auðvitað eitthvað betra en þetta boðlegt, held ég, hæstv. forseti.
Hæstv. innviðaráðherra, formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur verið nefndur hér í þessari fundarstjórn. Ég bara ber það mikla virðingu fyrir þeim innviðamálum sem fjallað er um að mér finnst það algjört lágmark að taka þátt í umræðu um þau, sérstaklega þegar er verið að gera ýmsar grundvallarbreytingar á því hvernig regluverk þeirra innviða sem þjóðin býr við er skipulagt. (Forseti hringir.) Ég upplifi ekki andúð á umræðunni hjá þingmönnum stjórnarflokkanna (Forseti hringir.) en ráðherrarnir eru alveg sérstaklega viðkvæmir þessa dagana sem er undarlegt.