um fundarstjórn.
Frú forseti. Þetta er auðvitað alveg ótrúleg staða. Það er búið að gerast núna tvisvar sinnum undanfarnar vikur að ráðherrar sóa í raun tíma þingsins með því að leggja fram ónýt mál sem eru kannski rædd hér klukkutímum saman en ráðherrar neyðast svo til að draga til baka vegna þess að þau voru illa unnin og ekki tilbúin. Við eyddum líka mörgum klukkustundum í að ræða einhvers konar drög að langtímaáætlun um stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða, það hét eitthvað slíkt. Nú er komin fram fjármálaáætlun sem afhjúpar að þetta plagg var einhvers konar grín af því að þetta verður ekki fjármagnað. Hver er að halda þinginu í gíslingu? Hverjir eru að þæfa? Auðvitað eru það ráðherrarnir sem láta svona. Við hér liðkum fyrir góðum málum eins og við getum, gerum okkar besta á þinginu fram eftir degi og kvöldi stundum. En svo gerist það trekk í trekk að ráðherrar hafa okkur að fíflum.