152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:50]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég held að staðreyndir tali sínu máli. Ég held að ráðherrarnir ættu bara að hætta þessu kvarti og kveini yfir því að við séum að tala um málin og þakka okkur fyrir. Við vitum um þingmannafrumvarpið sem heilbrigðisráðherra tók til baka. Hvers vegna? Vegna þess að það var ekki rætt við þá sem málið varðaði. Ekkert um okkur án okkar er kjörorð fatlaðs fólks en þarna átti að þvinga fram mál sem hafði aldrei verið lagt fyrir þá sem átti að þvinga. Síðan höfum við leigubílamálið. Við höfum fjarskiptamálin. Við höfum ýmis mál sem við ræðum hér og ráðherrar, hvar eru þeir? Jú, úti í bæ að kvarta yfir því að við séum að ræða málin þeirra. Við viljum ræða þau vel og vendilega þannig að við uppgötvum svona vitleysur eins og hafa verið í þeim fyrir þá og þeir geti leiðrétt þær. Þeir ættu að þakka okkur fyrir það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)