152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:51]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Þegar ég mætti til leiks í fjárlaganefnd í haust og var að reyna að skilja framsetninguna á öllum þessum plöggum sem fyrir okkur voru lögð þá átti ég erfitt með að skilja mikið af þeim. Í mörgum tilfellum stóð bara: Þetta er innan ramma. Svo vissi ég ekki neitt meira og það varð engin umræða um það meir, þetta var bara innan ramma. Hvaða ramma? Ég er aðeins að átta mig á því að það eru bara einhverjar leifar fortíðar sem liggja í þessum römmum. Ég hef núna farið niður á skrifstofur og verið að skoða þessa fjármálaáætlun sem er búið að leggja fyrir okkur. Ég er að reyna að grauta mig í gegnum hana. Mér finnst vera komin ansi mikil bjartsýni í hópinn sem leggur þetta fram og ég tala nú ekki um það að stærstu verkefnin og stærsta aðlögunin á að gerast fyrir utan kjörtímabilið. Það er sem sagt næsta ríkisstjórn sem á að bera ábyrgð á þessu öllu. Okkur í Viðreisn hefur verið hugleikið þetta sálfræðifrumvarp sem náðist loksins í gegn, framlög, fyrir áramót en ég sé þess ekki stað. (Forseti hringir.) Það er talað um 500 milljónir í geðheilbrigðismál á næsta ári og svo 100 milljónir á ári eftir það. (Forseti hringir.) En ég sé ekki staf um sálfræðifrumvarpið og það er ekki einu sinni farið að greiða út þessar 250 milljónir (Forseti hringir.) sem voru þegar ákveðnar í fjárlagafrumvarpinu fyrir þetta ár.