um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég kem af fjöllum varðandi þessa umræðu hæstv. innviðaráðherra. Ef við skoðum dagskrá þingsins, hvernig lítur hún út? Hvað vorum við að gera hér í allan gærdag? Við vorum með á dagskrá fyrirspurnir þingmanna til ráðherra. Við höfum verið með dagskrána smekkfulla af sérstökum umræðum og dagskrárliðum af hálfu stjórnarandstöðunnar. Vegna hvers? Það eru engin frumvörp hérna frá ríkisstjórninni. Staðan er ekkert flóknari en það. Það væri áhugavert að heyra hæstv. innviðaráðherrann nefna það hvaða málum hefur verið haldið í gíslingu. Hvaða mál hafa það verið? Þau eru engin. Þegar Framsókn talar um að málum sé haldið í gíslingu þá segi ég það að Framsóknarflokkurinn er gísl eigin verkkvíða. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)