um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Í handbók okkar þingmanna stendur um þennan dagskrárlið, fundarstjórn forseta, með leyfi forseta:
„Þegar þingmenn biðja um að fá að gera athugasemd við fundarstjórn forseta ber þeim að snúa máli sínu til forseta og eiga orðastað við hann. Með orðunum „fundarstjórn forseta“ er átt við að þingmenn fjalli undir þessum lið um framkvæmd þingskapa, svo og dagskrá, fundartíma og önnur formsatriði er lúta að störfum fundarins. Undir þennan lið falla ekki efnisumræður um þingmál. Þetta er umræða um form, ekki efni. “
Undir þessum lið hefur verið tekin sex og hálf klukkustund í mars. Ég fer fram á það við forseta að það verði gerðar ítarlegri leiðbeiningar til þingmanna um hvernig eigi að haga sér undir þessum dagskrárlið.