um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég settist á þing í gær og ég get sagt ykkur það að þetta er alveg ótrúlega dapurt umhverfi sem ég er að labba inn í. Það er mér svo mikil sorg í hjarta að koma inn í þetta ástand og sjá hvað er í gangi einhvern veginn á bak við tjöldin. Ég hef heyrt það í umræðunni hingað til að fólk takist á um málin en sé að stærstum hluta bara sammála, sé jafnvel vinir hérna frammi o.s.frv. Þetta var það sem maður heyrði svona framan af. En þetta er ömurlegt ástand (Gripið fram í: Heyr, heyr.) og þjóðinni ekki bjóðandi. Það er erfitt að útskýra fyrir 17 ára dóttur minni, sem langar að vita hvernig störfin hérna fara fram, hvað sé eiginlega að gerast, því að ekki skil ég það. Ég vona að allir leiti lausna til að nýta þessa frábæru þekkingu og fólk sem er hérna í salnum til að vinna fyrir þjóðina og hætta þessum sandkassaleik. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)