um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Við sem erum hér erum nú, held ég, velflest í pólitík og pólitík eins flokks er meira torskilin en annarra og það er pólitík Framsóknarflokksins. Núna kom hér upp þingmaður af hálfu Framsóknarflokksins, eini talsmaður ríkisstjórnarinnar sem hefur tekið þátt í þessari umræðu, hann kemur hérna og segir beint eða óbeint: Við skulum skrúfa fyrir þennan krana sem hér er, virðulegur forseti.
Við erum að reyna að kalla eftir upplýsingum úr þessum stól, við erum að kalla eftir aðhaldi á ríkisstjórnina og við erum að kalla eftir málum frá ríkisstjórninni sem leyfir sér síðan úti í bæ, í viðtölum í fjölmiðlum eða einhvers staðar annars staðar, að koma með stórar og digurbarkalegar yfirlýsingar um hvað þau ætli að gera í hinu og þessu; hvað þau ætli að gera í veiðigjöldum, hvað þau ætli að gera með bankana. En þegar pólitíkin er dregin hingað inn í sal þá má ekki spyrja ráðherrann. Þá kemur nefnilega í ljós að pólitík Framsóknarflokksins er ekkert annað en pótemkintjöld. Það er ekkert innihald. Þetta er bara „fake“ því að það stenst ekkert sem Framsóknarflokkurinn er að segja úti í bæ. Þegar við drögum pólitíkin inn (Forseti hringir.) segja þeir: Nei, ég meinti þetta ekki svona, þetta átti ekki að vera hinsegin. Eigum við að taka eitt gott dæmi? Hvar er t.d. þjóðarleikvangurinn í nýrri fjármálaáætlun? Þetta má ekki nefna, (Forseti hringir.) þetta má ekki minnast á hér inni. Við sem erum kjörin og sitjum hér, okkur ber skylda (Forseti hringir.) til þess að veita ríkisstjórninni aðhald (Forseti hringir.) og ef við þurfum að gera það undir fundarstjórn forseta þá gerum við það.