152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil nú kannski halda áfram með það sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kom inn á er varðar viðkvæmni Framsóknarflokksins og ráðherra flokksins. Það er auðvitað alveg ótrúlegt að fylgjast með því að flokkurinn sem virtist fá allt sem hann hafði ímyndunarafl til að biðja um eftir niðurstöðu kosninganna síðastliðið haust skuli vera svona lítill í sér og viðkvæmur þegar á reynir. (Gripið fram í: Lítið blóm.) Lítið blóm, lítið viðkvæmt blóm. Þetta er auðvitað alveg kostulegt. Það er búið að eyða hátt í 2 milljörðum í að stokka upp ráðuneytin til að sætta Framsóknarflokkinn. Það eru hin ýmsu mál sem flokkurinn virðist ná fram, bæði hvað varðar skipan nefnda og ráða. Aflið virðist hafa verið miklu meira í samningaviðræðunum við Sjálfstæðisflokkinn og Vinstri græn heldur en raunveruleikinn gefur tilefni til að ætla. Hversu lengi ætla þingmenn Sjálfstæðisflokks (Forseti hringir.) og Vinstri grænna að kyngja þessu þegjandi og hljóðalaust?