um fundarstjórn.
Forseti. Merkileg ræða sem hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir hélt hérna því að þetta eru einmitt umræður um dagskrá þingsins; hvaða mál er verið að tala um inni á þingi, hvernig er verið að ásaka stjórnarandstöðuna um að vera í málþófi. Eins og ég sagði áðan þá er það einfaldlega meiri hlutinn sem tekur sér dagskrárvaldið og setur bara sín mál á dagskrá. Það verða alltaf samningaviðræður um öll þeirra mál til að stjórnarandstaðan geti komið einhverjum af sínum málum líka á dagskrá. Það er einfaldlega stefna allra ríkisstjórna hingað til alla vega að henda þeim í ruslið, þær starfa einfaldlega þannig. Meira að segja þegar þau eru samþykkt þá framfylgja þau þeim ekki, sem er enn þá furðulegra. Þegar ríkisstjórnarflokkarnir vilja ekki semja hérna frammi eða inni í herbergjum eða hvar sem er þá fara samningaviðræðurnar að sjálfsögðu fram í ræðustól Alþingis. Að sjálfsögðu. (Forseti hringir.) Það á enginn að vera hissa á því. (Forseti hringir.) Þannig virkar þetta. Þegar samningaviðræður nást um það (Forseti hringir.) hvaða mál eru afgreidd og hvernig (Forseti hringir.) þá eru ekkert samningaviðræður í ræðustól Alþingis. (Forseti hringir.) Þá tæmist hann. Það er mjög eðlilegt. (Forseti hringir.) Það hefur alltaf gerst.
(Forseti (DME): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutíminn undir þessum lið er ein mínúta.)
(BLG: Klukkan er biluð.)